Fjórðungsmót var fyrst haldið á Vesturlandi fyrir 56 árum. Þetta var árið 1953 og var mótið haldið á Faxaborg í Borgarfirði. Fjórðungsmót hafa allar götur síðan verið haldin fjórða hvert ár, í fyrstu á Faxaborg og frá árinu 1980 á Kaldármelum. Síðasta fjórðungsmót var haldið á Kaldármelum árið 2005 og þótti takast afar vel.
Að framkvæmd mótsins árið 2009 standa hestamannafélögin Dreyri, Glaður, Faxi, Snæfellingur og Skuggi.
Framkvæmdanefnd skipa:
Eyþór Jón Gíslason, formaður framkvæmdanefndar, (Glaður)
Ámundi Sigurðsson (Skuggi)
Ása Hólmarsdóttir (Dreyri)
Gunnar Örn Guðmundsson (Faxi)
Gunnar Sturluson (Snæfellingur)
Framkvæmdastjóri:
Bjarni Jónasson
Sími: 894 9758
bkongur@simnet.is

