Þátttökuréttur
Félagafjöldi bak við hvern hest, í hverri grein, eru 50 félagar.
51. félagi veitir næsta hesti þátttökurétt fyrir félagið.
Gæðingakeppni
A og B úrslit verða í A og B flokkki (2x8 hestar) en ein úrslit verða í barna, unglinga og unmennaflokki með 8 hestum frá
hestamannafélögum á Norðvesturlandi.
Skráningargjald í gæðingakeppni er 4.000 kr. á hest, en frítt í barnaflokki.
Töltkeppni
Töltkeppni í fullorðinsflokki verður opin 40 hæstu hestum landsins 2009.
Töltkeppni í 17 ára og yngri verður bundin við hestamannafélög á Norð Vesturlandi. Þarf að skrá í hana
óháð félagafjölda.
A og B úrslit verða í tölti fullorðinna, og einnig í yngri flokki, með 5 hestum.
Skráningargjald er 5.000 kr. á hest í fullorðinsflokki, 4.000 kr. í yngri flokki.
Fljótandi 100 m skeið
Opin keppni verður í fljótandi skeiði.
Skráningargjald í fljótandi skeið er 5.000 kr.
Ræktunarbúsýningar
Í ræktunarbúsýningum þarf að skrá 5 hesta frá hverju búi og 2 til vara.
Skilyrði er að hrossin séu fædd sama aðila eða á sama bæ og skráður er fyrir sýningunni.
Skráningargjald fyrir ræktunarbúsýningu er 50.000 kr.
Síðasti skráningardagur og jafnframt greiðsla skráningargjalda er 15. júní nk.
Hestamannafélögin eru hvött til
þess að tilkynna skráningu eins fljótt og unnt er að úrtökum loknum.
|
Skráningargjöld skal greiða inn á reikning 0354
26 4506 Í skýringarlínu við innborgun er mikilvægt að hafa nafn á keppnisgrein og hrossi. |
Skráning
Skráningar í íþrótta- og gæðingakeppni fara fram í gegnum http://sportfeng.com/. SportFengur er veflægt mótakerfi Landssambands Hestamannafélaga (LH) til að halda utan um íþrótta- og
gæðingakeppni. LH veitir alla þjónustu við notendur kerfisins. SMELLIÐ hér til
að fá nánari upplýsingar um kerfið. Ný handbók SportFengs og Kappa 2009 gefur greinargóða lýsingu á framkvæmd
skráninga. Handbókina er að finna á pdf formi með því að SMELLA HÉR.
Skráning hrossa og keppenda er á ábyrgð formanna hestamannafélaganna. Senda skal inn nafn og kennitölu knapa og hests.
Nafn mótsins er: Fjórðungsmót Vesturlands 2009
Mótsnúmer er: IS2009LM0065
Aðstoð og upplýsingar vegna skráninga veitir Bjarni Jónasson, framkvæmdastjóri í síma 894 9758.
Fjöldi keppenda fer eftir félagatali LH þann 15. apríl 2009 og er nánar fjallað um fjölda hvers hestamannafélags hér ofar.
Ferðahross
Upplýsingar um gistingu hrossa HÉR

