Fjórðungsmót Kaldármelum

Vel heppnuð fjörureið um Löngufjörur Mikil stemning var í fjörureiðinni sem boðið var uppá á föstudagskvöldinu. Bóndinn á Snorrastöðum, Haukur

Vel heppnuð fjörureið um Löngufjörur

Um 150 hestamenn riðu Löngufjörur á föstudagskvöldið
Um 150 hestamenn riðu Löngufjörur á föstudagskvöldið
Mikil stemning var í fjörureiðinni sem boðið var uppá á föstudagskvöldinu. Bóndinn á Snorrastöðum, Haukur Sveinbjörnsson leiddi 150 manna hóp hestamanna í frábærri fjörureið um Löngufjörur.


Veður var frábært, mjúkt var undir fæti og unun að spretta úr spori á fjörunum.  Við þökkum Hauki fyrir góða leiðsögn og vel heppnaðan reiðtúr.

Kjartan Guðbrandsson tók skemmtilegar myndir úr fjörureiðinni og er þær að finna hér í myndasafninu á heimasíðunni - sjá MYNDIR.

Við þökkum Kjartani fyrir leyfi á birtingu myndanna.


Mynd augnabliksins

img_9649_x.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf