Fjórðungsmót Kaldármelum

Ræktunarbú FM: Glæsileg tilþrif og afburðahross frá Steinnesi Átta bú sýndu hross úr ræktun sinni á Kaldármelum í dag .  Fimm búanna frá Vesturlandi, þ.e.

Ræktunarbú FM: Glæsileg tilþrif og afburðahross frá Steinnesi

Ræktunarbúið Steinnesi í sýningu. Mynd: Marteinn Njálsson
Ræktunarbúið Steinnesi í sýningu. Mynd: Marteinn Njálsson
Átta bú sýndu hross úr ræktun sinni á Kaldármelum í dag .  Fimm búanna frá Vesturlandi, þ.e. Álftarós, Nýi bær 2, Skáney, Skjólbrekka og Stóri-Ás hafa áður sýnt fyrri Fjórðungsmótum á Vesturlandi en nýliðar í sýningu ræktunarbúa á Fjórðungsmóti í ár voru Höfðabakka (Húnaþingi vestra), Steinnes (Austur-Húnavatnssýslu) og Tunguháls II (Skagafirði). Sýningin fór fram í blíðskaparveðri og feikna skemmtileg stemning myndaðist í brekkunni. 

Fimmtán manna hópur undir handleiðslu Ágústar Sigurðssonar völdu ræktunarbú Fjórðungsmóts 2009.  Var hópurinn einróma um að ræktunarbúið Steinnes yrði fyrir valinu.

Mörg góð ræktunarbú tóku þátt í sýningunni  og allar voru sýningarnar skemmtilegar og kröftugar.  Glæsilegir gæðingar frá öllum ræktunarbúunum sýndu góð tilþrif.
 
Í hópnum frá Steinnesi var engan veikan blett að finna. Þar voru tómir snillingar og afrekshross á ferð, enda fagnaði brekkan ákaft þegar hópurinn reið um völlinn. 

Við óskum Steinnesfjölskyldunni til hamingju með glæsilegan árangur!


Mynd augnabliksins

fra_gunna_hrisdal2.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf