Fjórđungsmót Kaldármelum

Máttur frá Torfunesi sigurvegari í A-flokki gæðinga eftir glæsilega keppni Máttur frá Torfunesi og Erlingur Ingvarsson sigraðu A-flokk gæðinga eftir

Máttur frá Torfunesi sigurvegari í A-flokki gćđinga eftir glćsilega keppni

Máttur frá Torfunesi og Ţorvar Ţorsteinsson. Myndin er af myndasíđu Dags Brynjólfssonar.
Máttur frá Torfunesi og Ţorvar Ţorsteinsson. Myndin er af myndasíđu Dags Brynjólfssonar.
Máttur frá Torfunesi og Erlingur Ingvarsson sigraðu A-flokk gæðinga eftir frábæra úrslitakeppni sem rétt í þessu var að ljúka hér á Kaldármelum.  Hlutu þeir einkunnina 8,71.

Máttur og Erlingur voru jafnframt hæstir í forkeppninni fyrr í vikunni.  Erlingur var að vonum ánægður með árangurinn og hampaði bikarnum hátt á lofti í sólinni og blíðunni á Kaldármelum í lok móts.

Í heildina var um mikila glæsisýningu A flokks gæðinga að ræða.

Þess má geta að Blær frá Hesti og Jakob Svavar Sigurðsson sigruðu B úrslit í A flokki í gærkveldi og unnu sér þar með þátttökurétt í úrslitunum í dag.  Lentu þeir félagar í  öðru sæti í A flokki gæðinga með einkunnina 8,54.  Þriðja sæti í A flokki gæðinga vermir Háttur frá Þúfum og knapinn Metta Mannseth.


Sæti      Keppandi           
1           Máttur frá Torfunesi / Erlingur Ingvarsson    8,71   
2           Blær frá Hesti / Jakob Svavar Sigurðsson    8,54   
3           Háttur frá Þúfum / Mette Mannseth        8,48   
4           Sólon frá Skáney / Haukur Bjarnason        8,46   
5           Kylja frá Hólum / Ísólfur Líndal Þórisson    8,43   
6           Þóra frá Prestsbæ / Pétur Örn Sveinsson    8,38   
7           Umsögn frá Fossi / Jón William Bjarkason    8,30   
8           Þrándur frá Hólum / Þorsteinn Björnsson    7,65  

Myndina af Mætti hér að ofan tók Dagur Brynjólfsson, heimild: http://www.flickr.com/photos/dalli/2667609232/




Mynd augnabliksins

fra_gunna_hrisdal2.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf