sunnudagur 05.júlí 2009 - Lestrar 82
Framtíðarknapar landsins luku rétt í þessu keppni í tölti 17 ára og yngri. Keppnin var afar skemmtileg og gaman að fylgjast með unga
fólkinu sem er hestamennskunni til mikils sóma.
Eftir dóma voru þau Fríða Marý Halldórsdóttir á Sóma frá Böðvarshólum og Konráð Axel Gylfason á Mósart frá Leysingjastöðum II, hnífjöfn og riðu þau bráðabana.
Eftir spennandi bráðabana sigraði Konráð Axel en þess má geta að Konráð Axel og Mósart unnu B úrslitin í tölti unglinga í gær og unnu sér þar með rétt inní úrslitatöltið í dag. Það er því sætur sigur hjá þeim Konráð Axeli og Mósarti í dag!
Við óskum unga fólkinu innilega til hamingju árangurinn og fyrir þátttöku á Fjórðungsmóti 2009 og þökkum þeim prúðmennsku og drengilega keppni.
Sæti Keppandi
1 Konráð Axel Gylfason / Mósart frá Leysingjastöðum II 6,06
2 Fríða Marý Halldórsdóttir / Sómi frá Böðvarshólum 6,06
3 Guðný Margrét Siguroddsdóttir / Mosi frá Kílhrauni 6,00
4 Eydís Anna Kristófersdóttir / Þokki frá Blönduósi 5,94
5 Andri Ingason / Pendúll frá Sperðli 5,89
6 Heiðar Árni Baldursson / Breki frá Brúarreykjum 5,83