Fjórđungsmót Kaldármelum

Knapi mótsins, hestur mótsins og reiðmenntunarverðlaun FT veitt í lok Fjórðungsmóts Í lok mótahalds á Kaldármelum voru veitt verðlaun fyrir hest mótsins

Knapi mótsins, hestur mótsins og reiđmenntunarverđlaun FT veitt í lok Fjórđungsmóts

Hestur mótsins: Máttur frá Torfunesi. Mynd af heimasíđu Léttis
Hestur mótsins: Máttur frá Torfunesi. Mynd af heimasíđu Léttis
Í lok mótahalds á Kaldármelum voru veitt verðlaun fyrir hest mótsins og knapa ásamt því að Félag tamningamanna veitti sérstök reiðmenntunarverðlaun.

Reiðmenntunarverðlaun FT
hlaut Helga Una Björnsdóttir sem búsett er í  Austur-Húnavatnssýslu.  Hér er afar efnilegur knapi á ferð sem á bjarta framtíð fyrir sér.  Helga Una sýndi frábæra frammistöðu á Karitas frá Kommu í flokki ungmenna í gær, laugardag og sigraði flokkinn með einkunnina 8,57.  Hún tók einnig þátt í ræktunarbússýningu Höfðabakka í gær á hestinum Hljóm frá Höfðabakka.






Hér á myndinni t.v. er Helga Una á Hljóm frá Höfðabakka í keppni f.h. hestamannafélagsins Þyts á Íslandsmóti barna, unglinga og ungmenna sem lauk nýverið.



Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hest eða knapa mótsins, árangur þeirra og framkoma á Fjórðungsmóti segir allt sem segja þarf!




Hestur mótsins: Máttur frá Torfunesi

Knapi mótsins: Bjarni Jónasson hér t.v. á Kommu frá Garði.

Til hamingju Helga Una, Bjarni, Erlingur og Máttur!
 


Mynd augnabliksins

img_9621_x.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf