Fjórđungsmót Kaldármelum

Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi sigruðu magnaða töltkeppni í kvöld Frábærir töltarar luku rétt í þessu keppni í A úrslitum í tölti. Sex hross

Halldór Guđjónsson og Nátthrafn frá Dallandi sigruđu magnađa töltkeppni í kvöld

Frábærir töltarar luku rétt í þessu keppni í A úrslitum í tölti. Sex hross kepptu hestakosturinn var frábær og keppnin spennandi og skemmtileg.




Sigurvegari töltkeppninnar á Fjórðungsmóti 2009 eru Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi með einkunnina 8,67. 

Auk heiðursins og afburða einkunnar hlýtur sigurvegarinn 100.000 kr. peningaverðlaun. 

Í öðru sæti er Sigurður Sigurðarson á Kjarnorku frá Kálfholti með einkunnina 8,61 . Þeir félagar Bjarni Jónasson og Komma frá Garði fengu einkunnina 8,28 og verma því þriðja sætið.

Með sanni má segja að um mikla töltveislu hafi verið að ræða á Kaldármelum í kvöld og unun að sitja í kjarrivaxinni brekkunni og fylgjast með þessum sex afbragðsgæðingum og knöpum tölta á björtu sumarkveldi í 16°C hita.

Sæti      Keppandi           
1           Halldór Guðjónsson / Nátthrafn frá Dallandi        8,67   
2           Sigurður Sigurðarson / Kjarnorka frá Kálfholti        8,61   
3           Bjarni Jónasson / Komma frá Garði        8,28   
4           Lena Zielinski / Gola frá Þjórsárbakka        8,22   
5           Sigursteinn Sumarliðason / Borði frá Fellskoti        7,83   
6           Ólafur Ásgeirsson / Jódís frá Ferjubakka 3        7,72   






Mynd augnabliksins

img_9632_x_1.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf