Fjórđungsmót Kaldármelum

Úrslitadagur framundan og spennan magnast í dag, laugardag, hefjast úrslit ungmenna, unglinga og barnaflokks á hringvellinum kl. 09:00. Þetta verða

Úrslitadagur framundan og spennan magnast

í dag, laugardag, hefjast úrslit ungmenna, unglinga og barnaflokks á hringvellinum kl. 09:00. Þetta verða geysispennandi úrslit enda hefur unga fólkið lagt mikið á sig til að ná langt á vellinum. 

B úrslit í tölti fullorðinna og B úrslit í tölti 17 ára og yngri hefjast uppúr kl. 11:00 í dag.

Yfirlitssýning stóðhesta stendur yfir frá kl 13 – 15:30.  Áhugavert verður að fylgjast með þeim glæsigripum sem komið hafa fram í forkeppninni kynbótahrossa undanfarna daga.

Sýning ræktunarbúa fer fram kl 16:00 og munu átta bú taka þátt. Ræktunarbú frá Vesturlandi hafa öll tekið áður þátt á Fjórðungsmóti en hin eru nýliðar. Það ríkir ávallt stemning í ræktunarbússýningum og mun það vera í traustum höndum Ágústar Sigurðssonar, rektors Háskólans Hvanneyri, að velja ræktunarbú Fjórðungsmóts 2009.

100 m fljúgandi skeið er einnig á dagskrá Fjórðungsmóts í dag og að því loknu tekur við magnþrungin spenna í B úrslitum í A flokki.  Úrslit í tölti fullorðinna hefst kl. 21.

Að lokinni dagskrá keppnishluta verður síðan dansleikur og kvöldvaka í Hvamminum!



 



Mynd augnabliksins

stb_2139.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf