Fjórđungsmót Kaldármelum

Fjórðungsmót Kaldármelum

Vel heppnuđu Fjórđungsmóti 2009 á Vesturlandi lokiđ

 Fjórðungsmóti 2009 á Vesturlandi lauk sunnudaginn 5. júlí með magnþrunginni spennu í keppni í A flokki gæðinga. 

Fjöldi gesta í brekkunni hylltu hross og knapa í lok keppninnar enda hestakosturinn glæsilegur.

Úrslit í öllum greinum er að finna hér að ofan undir valmyndinni ,,úrslit".

Myndin hér til vinstri sýnir Bjarna Jónasson (fjær) taka við verðlaunum sem Knapi mótsins í mótslok.  Við hlið hans er hestur mótsins, Máttur frá Torfunesi, setinn af Erlingi Ingvarssyni.
 
Mótshaldarar eru ánægðir með mótahaldið og þakka öllum þeim fjölda sem komu að skipulagi mótsins og framkvæmd fyrir vel unnin störf. 
 

Knöpum, ræktendum og eigendum hrossa er þökkuð þátttaka, prúðmennska og drengileg keppni. 

Er það von mótshaldara að bæði gestir og þátttakendur hafi notið Fjórðungsmóts í blíðskaparveðri á Kaldármelum 2009.

Smellið HÉR til að fá yfirlit yfir allar fréttir frá Fjórðungsmóti 2009.

Fréttir

Ný könnun

Mynd: Marteinn Njálsson
Hér til vinstri hliðar er könnun um hvernig til tókst með Fjórðungsmót 2009 og værum við þakklát að fá svör ykkar!

Fleiri myndir frá mótinu

Fjölmenni var í brekkunni á laugardeginum
Á myndasíðu Marteins Njálssonar frá Suður-Bár er einnig að finna myndir frá Fjórðungsmóti. Lesa meira

Myndir frá Fjórđungsmóti


Á myndasíðu Kolbrúnar Grétarsdóttur er að finna fjölda mynda frá Fjórðungsmóti.
Við bendum áhugasömum að kíkja á hestakost og knapa Fjórðungsmóts með því að smella hér á tengilinn: Lesa meira

Knapi mótsins, hestur mótsins og reiđmenntunarverđlaun FT veitt í lok Fjórđungsmóts

Hestur mótsins: Máttur frá Torfunesi. Mynd af heimasíđu Léttis
Í lok mótahalds á Kaldármelum voru veitt verðlaun fyrir hest mótsins og knapa ásamt því að Félag tamningamanna veitti sérstök reiðmenntunarverðlaun.
Lesa meira

Máttur frá Torfunesi sigurvegari í A-flokki gćđinga eftir glćsilega keppni

Máttur frá Torfunesi og Ţorvar Ţorsteinsson. Myndin er af myndasíđu Dags Brynjólfssonar.
Máttur frá Torfunesi og Erlingur Ingvarsson sigraðu A-flokk gæðinga eftir frábæra úrslitakeppni sem rétt í þessu var að ljúka hér á Kaldármelum.  Hlutu þeir einkunnina 8,71.
Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf